Það sem gerðist hjá mér

Blogg Sirrýar

18.10.2008 09:53:30 / sirrye

Hahahaha

 

cid:image001.gif@01C90131.941FFF40
Stundum


cid:image002.gif@01C90131.941FFF40


Stundum...


þegar þú grætur.....


sér enginn tárin þín


cid:image003.gif@01C90131.941FFF40

Stundum.....

þegar þér er illt...


sér enginn að þér sé illt.




Stundum.....


þegar þú hefur áhyggjur...

sér enginn þín áhyggjefni.




Stundum...


þegar þú ert hamingjusamur....


sér enginn að þú brosir.


-


-


-




En
REKTU VIÐ bara EINU sinnicid:image004.jpg@01C90131.941FFF40
Og allir vita það!!!!


 


Þarna plataði ér þig!!

Þú hélst að þetta væri ein af öllum þessum sorglegu sögum
ha ha ha


cid:image005.gif@01C90131.941FFF40


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.09.2008 22:24:46 / sirrye

Klukk...

Ég var klukkuð takk Nína mín 

Hér kemur mitt klukk

Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina : />

·         Ritur /Rækuverksmiðjan />

·         Hótel  Ísafjörður />

·         Tannlæknastofan á Ísafirði />

·         Tannlæknar Mjódd />

>

 Fjórar Kvikmyndir sem ég held upp á : />

·         To the center of the earth />

·         Mamma mía />

·         Stardust />

·         Mýrin />

> >

Fjórir Staðir sem ég hef búið á: />

·         Hlíðarvegur 33 />

·         Mjallagötu 1 />

·         Silfurteig 5 />

·         Kleppsvegi 40 />

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar: />

·         Grays Anatomi />

·         90210( nýjustu þættirnir) />

·         Men in trees />

·         Lost />

>

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum : />

·         Egilstaðir />

·         Akureyri />

·         London />

·         Þýskaland />

Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg : />

·         Vísir.is />

·         Bb.is />

·         Mbl.is />

·         Og póstinn minn miljón sinnum á dag />

Fernt sem ég held uppá matarkyns : />

·         Lasanja />

·         Heimabakaða pizzu />

·         Hakk og spagetti la sirrý />

·         Grillaður Lax/silungur />

Fjórar bækur sem ég les oft: />

·         Barnabækur með Emblu fjölbreitt úrval />

·         Rauðu ástarsögurnar />

·         Símaskránna />

·         Matreiðslubækur af ýmsu tagi />

Fjórir staðir sem ég vildi helst vera á núna: />

·         Þýsklandi drauma staðurinn minn />

·         Á ísó á Hótel mömmu />

·         Í heilsdagsnuddi og allsherjar dekri />

·         Á sólarströnd á Spáni />

Fjórar manneskjur sem ég vil klukka : />

Esther Ósk: http://besther.blogcentral.is/ />

Hrannar: http://hrannihrikalegi.blogcentral.is/ />

Kristín Sig: http://kristinsig.bloggar.is/ />

So sorry algjörlega slökkt á mér, en endilega allir sam vilja takið þátt. />

Kveðja Sirrý />

Ps: Takk Nína mín nú eyddi é öllu laugardagskvöldinu í þetta.... />


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.09.2008 22:15:31 / sirrye

Sætindi og magapína ......

Sæl og blessuð nú er tölvan mín komin í lag þannig að nú get ég sko farið að blogga eða ætla að reyna það hihihih.:lol:

 Allavega þá er ég búin að fara að kaupa mér nýja þvottavél og er ekkert smá ánægð geri ekkert annað en að þvo þvott og Helgi segir að þvottarhúsið sé orðið hobbý herbergið mitt bara fyndið ég held bara að  hann sé smá abbó útí þvottavélina hahahahh. :^)

Ég er að standa mig bara nokkuð vel í nammibindindinu á virkum dögum(ég tók ákvörðun að eftir sumar fríið sem saman stóð að nammi snakki og gosi þá ætlaði ég bara að borða nammi, annað sætabrauð og GOS bara á laugardögum )  þannig á laugardögum eða nammidögum þá treð ég mig svo út að ég er alltaf að drepast í maganum á laugardagskvöldum en það er bara gott á mig þarf að kunna mér hóf. 8|:cry:

En undirbúningurinn fyrir brúðkaupið gengur bara mjög vel komin með söngvar,kirkju ,sal ,prest,mat og kjól ég er búin að fynna kjólinn ohhhh ég verð svo mikil prinsessa á brúðkaupsdaginn vitið þið til....;)

Allavega þá gerðist ekkert spennandi hjá mér þetta vikuna  frekar en aðrar vikur.

Þannig að bless í bili Kveðja Sirrý


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.09.2008 22:01:35 / sirrye

Biluð bilun

Gott kvöld ég er á lífi en ekki tölvan min því hún er biluð þaðer allt að bila hjá mér þessa dagana

Tölvan bilaði og er ennþá í viðgerð  síðan bilaði þvottavélin mín eða heilinn í henni er ónýtur og það kostar morðfjár að laga hana þannig að ég er ekki viss hvort við látum laga hana eða hvort við reynum kannski að kaupa nýja en þvottavélin mín er ekki orðin einu sinni orðin        5 ára  frekar slæm nýting ekki satt, síðan bilaði nýja hjólið hans Benónís og það er komið á verkstæði. „Allt er þegar þrennt er „ vona ég.

Út í aðeins jákvæðara það er ég og Helgi á fullu að skipuleggja brúðkaupið okkar! Já við erum að fara að gifta okkur um næstu páska  en við erum búin að vera saman í 13 ár þannig að það er komin mjög góð reynsla á þetta. Komin með sal, kirkju, prest ,mat og er að klára að redd öllu hinu ohhhhh mér hlakkar svo til..........

En hún Helga Mæja amma mín hefði átt afmæli í dag  69 ára, mér finnst það enn þá svo óraunverulegt að hún sé dáinn og það er mjög erfitt að sætta sig við það  en ég sakna hennar svo mikið og ég vona að hún viti að ég er að hugsa til hennar, en nú er það þannig að ég get ekki hringt í hana og sagt til hamingju með daginn amma mín . Amma mundi alltaf eftir mínum afmælisdegi (en þetta árið þá dó hún 5 dögum fyrir  afmælið mitt en ég beið við símann allan daginn  eftir því að heyra frá henni en aldrei hringdi hún) á hverju ári þá hafði hún hringt í mig og lét mig vita af því að hún mundi eftir mér og að henni þótti vænt um mig og í lokinn sagði hún alltaf guð veri með þér og nú segi ég það sama við þig amma, guð veri með þér, ég elska þig þín Sirrý .

Lífið heldur áfram svo mikið er víst og ég er mjög hamingjusöm í dag og ég veit að amma mun alltaf vera hjá mér.

Bless í bili Sirrý


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.08.2008 16:09:19 / sirrye

Sumarfrí

Jú ég er á lífi bara búin að vera í geðveiku sumarfríi ...ohhhh vildi að tíminn væri ekki svona fljótur að líða ég er nefnilega að fara að byrja að vinna á fimmtudaginn það er alltaf erfitt að byrja að vinna eftir svona gott sumarfrí en það er líka gott að fara í rétta rútínu aftur. Er að vinna í að vekja krakkana fyrr á morgnana en það gengur illa.......:$

>

En smá af sumarfríinu mínu ég fór vestur  17 júlí og ég var að koma heim á sunnudaginn. Ekkert  smáræði  HA....:haha:  En allavega þá var ég í algjöru dekri fyrir vestan, prjónaði einn kjól en hann var of stór á Emblu þannig að ég gaf Kötlu Vigdísi hann og hún hefur varla farið úr honum síðan smá að monta min.

Helgi kom síðan vestur nokkrum dögum fyrir verslunarmannahelgina, Þá fórum við í húsbílaferðalag, Samúel var stolið með og hafði hann mjög gaman að því, við keyrðum í einum rikk til Hvammstanga og þar gistum við eina nótt á planinu hjá Sigrún Birnu vinkonu, þaðan keyrðum við á Akureyri og Sigrún og Fjölskylda komu líka og þar var gist í þrjár nætur mikið trallað og bara gaman. Á mánudeginum það var keyrt að Laugum í Sælingsdal þar var farið í sund og um kvöldið var nammipartý og spilað Monopoly.Daginn eftir keyrðum við  í Bjarkalund og þar gistum við í eina nótt.

Síðan en ekki síst þá keyrðum við aftur á Ísafjörð og þar vorum við í afslappelsi á ísó og Suðureyri fram að Mánudag þá fór Helgi aftur suður en núna fljúgandi, ég og krakkarnir urðum sían eftir hjá mömmu og pabba.Helgi kom síðan aftur vestur á föstudeginum því að okkur var boðið í síðbúna fermingaveislu hjá Valgeir Skorra en þau voru að flytja heim frá Englandi þess vegna var fermingin svona seint. Á Sunnudaginn síðasta keyrðum við síðan suður aftur og tókum með okkur nýjan fjölskyldumeðlim hana Sokkabröndu en það er kisan okkar ekkert smá sæt og yndisleg.

Núna er ég bara í leti heima og er að klára sumarfríði mitt ætlaði að vera rosa dugleg að taka til í skápum en ég nenni því ekki geri það þegar ég er orðin gömul.8)

Nóg í bili bæjó spæjó Kv Sirrý


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.07.2008 19:45:06 / sirrye

Hlaupabóla

Jæja hvað haldið þið hlaupabólan er komin í heimsókn, Embla tók hana með sér heim af leikskólanum. Á þriðjudagskvöldið þá tókum við eftir 1 bólu og svo var Embla komin með hita en svo morguninn eftir þá var hún öll orðin út steypt og það koma fleiri og fleiri bólur á hverjum morgni núna. En hún er alveg mögnuð  því að ég er búin að segja henn að hún megi alls ekki klóra sér í bólunum og viti menn hún hlíðir því alveg nema á nóttunum þá er þetta meira ósjálfrátt en ég er bara dugleg að bera á hana kláðastillandi.

Benóní er kominn heim úr öllum utanlandsferðunum og er mjög ánægður og strax farinn að plana að fara út á næsta ári en með hverjum það veit ég bara ekki. Honum er búið að vera boðið svo oft til útlanda að honum finnst þetta bara vera orðinn sjálfsagður hlutur að allir bjóði sér með ..............

Helgi er aftur farinn frá okkur, buhubuhu hann er farinn á kárahnjúka aftur og nú hittum við hann ekki aftur fyrr en 23 júlí og þá bara í 4 daga síðan fer hann aftur þannig að það er ekki víst að við fórum í húsbílaferðalagið okkar sem við vorum búin að plana.

Af mér sjálfri er ekkert mikið að frétta bara þetta að vinna og sjá um heimilið og börnin en ég kvarta ekki því að börnin mín eru þau bestu í heimi og ég geri allt fyrir þau.

Ég er strax farin að sakna Helga míns það er alltaf svo einmannalegt  án hans.

Þangað til næst Sirrý


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.06.2008 08:55:54 / sirrye

17 júní

Hæ hó og jibbí jei  það er kominn 17 júní...................

Það er komið langt síðan ég lét í mér heyra síðast.

Það er búið að vera svo mikið að gera við erum búin að vera að taka herbergið hans Benónís í gegn mála það, skipta um gluggakistu, laga gluggan, rífa burt veggfastan fataskáp og fleira og fleira en í miðjum framkvæmdum þá stakk kallinn minn af á Kárahnjúka og hann er búinn að vera þar síðan á fimmtudaginn í síðustu viku og kemur ekki heim fyrr er í lok þessarar viku eða um næstu helgi. Þannig að ég er búin að vera á fullu að klára herbergið og þrífa allt rykið í burtu ekkert smá ryk sem kemur þegar maður er að standa í framkvæmdum en þetta er alltaf svo gaman þegar allt er búið.

Benóní prinsinn minn er að koma heim í kvöld og mamma og pabbi og Samúel en þau eru búin að vera á Kanarí í 2 vikur oooooohhhhhhh hvað ég hef saknað Benónís mikið . En hann stoppar stutt því að hann fer svo til London á fimmtudaginn aftur eldsnemma um morgunnin með tengdó og hann verður í burtu í 10 daga í viðbót en bara gaman fyrir hann.

Mikið hlakkar mér til að fara í sumarfrí en það verður ekki fyrr en um miðjan júlí þannig að ég er búin að panta sólina þá.

Jæja nenni ekki að skrifa meira bless í bili og skemmtið ykkur vel í dag kveðja Sirrý


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.06.2008 11:25:44 / sirrye

Vinna vinna og vinna

Það er alltaf nóg að gera hjá okkur .

Benóní er ennþá út á Kanarí og það er rosalega gaman hjá honum, mikill hiti og rosa stuð. Hans er sárt saknað og okkur hlakkar svo til það fá hann heim .

Við erum á fullu í framkvæmdum á herbergunu hans Benónís og síðan er Helgi að fræsa og kaga gluggana bæði í eldhúsinu og inni hjá Benóní. Þannig að það er allt í sagi og drulli hjá okkur algjör viðbjóður. Við fórum í brúðkaup í gær Margrét og Gestur samstarfsfélagar mínir voru að gifta sig í gær voða fallega athöfn og veislan stórskemmtileg. Bara að segja ykkur smá af okkur en nú ætla ég að fara að hjálpa Helga og reyna að þrífa smá íbúðina.

Vinnukveðjur Sirrý


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.06.2008 17:32:42 / sirrye

Fallegt

Gömul þjóðsaga segir frá barni sem var við það að fæðast. Barnið snýr sér
að Guði og segir:
Mér er sagt að ég verði sendur á jörðina á morgun,
en hvernig get ég lifað eins lítill og ósjálfbjarga sem ég er?
Ég hef valið engil fyrir þig úr hópi engla og hann bíður eftir þér.
Þessi engill mun sjá um þig.

En segðu mér, hérna á himninum geri ég ekkert annað en að syngja
og brosa og það er nóg til þess að vera hamingjusamur.
Engillinn þinn kemur til með að syngja fyrir þig, hann brosir til þín alla daga
og þú verður umlukinn ást hans og þannig verðurðu hamingjusamur.
En hvernig get ég skilið þegar fólkið talar við mig þar sem ég þekki ekki
tungumálið sem mennirnir tala ?

Engillinn þinn segir falleg orð við þig, fallegustu orð sem þú hefur nokkur
tíma heyrt og með mikilli þolinmæði og kærleik kennir hann þér að tala.
En hvað geri ég ef ég vil tala við þig ?
Þá setur engillinn þinn hendurnar þínar saman og kennir þér að biðja.
Ég hef heyrt að á jörðinni séu til vondir menn. Hver getur varið mig ?
Engillinn þinn mun verja þig, þó svo það kosti hann lífið.

En ég verð alltaf sorgmæddur því ég sé þig ekki oftar. Engillinn þinn á
eftir að segja þér frá mér og vísa þér veginn í áttina til mín, en þó mun
ég alltaf vera við hlið þér. Á þessu andartaki færðist ró yfir himininn og
guðdómlegar raddir heyrðust og barnið sagði:

Kæri Herra, þar sem ég er að fara segðu mér, hvað heitir engillinn minn ?
Nafn hans skiptir ekki máli, þú kallar hann bara “Mömmu”

» 1 hafa sagt sína skoðun

03.06.2008 15:59:39 / sirrye

Snökkt snökkt..................................

Afmælisveisla gaman gaman .....Benóní hélt upp á afmælið sitt um helgina .

Á laugar daginn þá bauð hann bekkjabræðrum sínum og Samúel bróðir í afmælis bíó á myndina Indiana Jones það var nú meira stuðið Helgi fór með þeim og það var voða gaman Benóní var mjög ánægður með þetta afmæli.

Á sunnudaginn þá hvar síðan haldið fjölskyldu afmæli með öllu tilheyrandi kökum og aftur kökum nammi namm Benóní fékk fullt af pökkum allt sem hann var búinn að óska sér.

En hann Benóní fór til Kanarí í morgunn með mömmu, pabba og Samúel þau verða í 2 vikur í sól ég er sko abbó alveg hrikalega..........................

Ég er strax farin að sakna hans.... Jæja þangað til næst kveðja Sirrý


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.05.2008 07:58:33 / sirrye

Benóní Hjörtur

Hann Benóní minn á afmæli í dag. Hann er orðinn 11 ára  Innilega til hamingju prinsinn minn
Hafðu það gott í dag.
Kveðja þín Mamma


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.05.2008 22:41:59 / sirrye

Helgarfrí það jafnast ekkert á við helgarfrí........

Mér finnst ágætt að blogg svona eftir helgarnar.

En þessi helgi var engri lík það mikið að gera að þeg þyrfti að fá mér frí eftir fríið.

Á Laugardaginn þá byrjaði auðvitað dagurinn á fimmleikum með Emblu en Helgi fór þennan laugardag með hana, Við Benóní vorum heima að læra undir próf en hann er að fara í landfræðipróf á morgun þetta er ekkert smá en Benóní á að taka 9 próf þetta er bilun. En þegar Helgi og Embla komu heim þá var brunað út í búð og síðan þaðan í húsdýragarðinn og þegar þangað var komið þá mundi ég afhverju ég ætlaði ekki að fara aftur í húsdýragarðinn þegar það væri verið að bjóða manni. Það var GJÖRASMLEGA troðið þannig að minnið mig á að mæta ekki aftur þangað þegar það heitir frítt fyrir alla.................  Um kvöldið þá kom Ágúst frændi Helga og gisti hjá okkur og þá var pönntuð pissa (eins og amma hefði sagt það) og allir fengu að vaka þangað til þeir duttu niður um alla íbúð Benóní í sófanum og Embla á gólfinu. En það er alltaf þannig að ef það er næturgestur hjá okkur þá eru börnin mín alltaf fyrst að sofna alveg ótrúlegt.

Á sunnudaginn þá fór Helgi með alla krakkana í sund þannig að ég fór að baka og snúast út í búð, Síðan var farið niðaur í Laugarneshverfi því að það var hátíð í gangi fyrir utan kirkjuna. Laugarnes á ljúfu nótunum heitir hún og er haldin á hverju ári, rosalega skemmtileg. Síðan um kl fimm þá fórum við í borgarleikhúsið á leiksýninguna Gosi og það var stór skemmtileg sýning og krakkarnir skemmtu sér stórkostlega.Síðan var haldið áfram að læra undir landafræðiprófið með Benóní.  Dagurinn endaði síðan á því að grilla svínakjöt og tilheyrandi ummmmmm. Þannig að núna eru allir búnir á því og sofnaðir nema ég því ég er að blogga og segja ykkur fréttir af mér og mínum.

Síðan er ein öfundarfrétt sem ég varð að segja ykkur en hann  Benóní er að fara til Kanarý núna í byrjun júní með mömmu og pabba í 2 vikur og síðan þegar hann kemur heim 17 júní um tíu leitið þá fer hann út til London 19 júní  í 11 daga með tengdaforeldrum mínum . Svo þannig er staðan hann Benóní minn er þá búinn að fara miklu oftar til útlanda en mamma sín finnst ykkur þetta ekki fúlt svona fyrir mína hönd????

Þangað til næst kveðja Sirrý


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.05.2008 20:04:47 / sirrye

Tíminn líður hratt.....

Jæja enn ein helgin búinn það er alveg svakalegt hvað tíminn líður hratt þegar maður er orðinn eldri og maður bara eldist meira. Ég man hvað tíminn var svakalega lengi að líða þegar maður var krakki en það var víst ekkert að marka þá var víst ekki eins mikil ábyrgð á manni eins og er nú í dag það er víst farið að styttast í þrítugs aldurinn  buhu ég er að verða gömul...................... />

Alla vega þá var mikið að gera þessa helgina á föstudaginn þá var bökuð pizza og pepsi með með tilheyrandi afslöppun um kvöldið. />

Á laugardaginn þá var vaknað snemma skellt sér í sturtu og síðan farið með Emblu í fimmleika og þegar þeir voru búnir þá var farið í Toy´s rus , Embla fékk nefnilega tæki til að hlusta á geisladiska og til að syngja í, frá okkur í afmælisgjöf í des en það kom alltaf brunalykt úr því þegar það var kveik á því þannig að við skiluðum því og fengum annað en það var dautt eftir viku þannig að við skiluðum því líka og fengum innleggsnótu og við vorum að leyfa Emblu að nota nótuna núna og hún valdi sér tjald og mikið að plast matvörum og nú er hún á fullu að elda mat inn í tjaldi fyrir alla :lol: bara sætt. Síðan á laugardaginn það var þrifnaðardagur í blokkinni og þvílíkt drasl sem var hent ég missti bara andlitið að sjá allt þetta drasl, það voru tveir gámar fylltir það var ekkert smá skal ég segja ykkur. Síðan grilluðum við Helgi og fríða fyrir alla í lokinn. Síðan um kvöldið þá bauð Didda og Gummi okkur í mat voða voða gott, en ég var orðin mjög slöpp og viti menn ég var komin með flensu á sunnudaginum. Þannig að ég lá eigilega allan daginn í rúmminu. />

Á mánudeginum var ég ennþá slöpp en dreyf mig á fætur og þreyf placið  og síðan fórum við í perluna og versluðum skó á Benóní, en hann er mesti skóböðull sem ég þekki. />

Benóní er nú á fullu í prófum og það er ekki bara próf í skólanum heldur þá eru próf send heim líka sem við megum ekki hjálpa honum með en það er svolítið erfitt 8| />

Nú er skólinn hjá Helga að klárast en hann er að fara í próf á morgun og síðan byrjar hann að vinna á fimmtudaginn jibbííí. />

Jæja þangað til næst kveðja Sirrý />


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.05.2008 19:54:42 / sirrye

Sorg

>

Það er alveg ótrúlegt hvað sorgin tekur á mann. Ég er búin að vera svo þreytt............. Amma var jörðuð á síðasta laugardag og athöfnin var svo falleg endalaus  blóm og helling af krönsum og troðfull kirkja það virðist vera að amma hafi þekkt allan bæinn. Í jarðaförinni þá var spilað hluta af uppáhalds lögunum hennar ömmu og síðan var stórkostlegur söngvari sem söng í kirkjunni. Afi stóð sig eins og hetja en hann var orðinn mjög þreyttur og það sást langar leiðir ohhhhh hvað ég finn til með honum það er örugglega skelfilegt að missa lífsförunautinn sinn. />

En í kistulagningunni á föstudaginn þá fékk Geiri frændi, bróðir hans afa hjartastopp í athöfninni og Setta frænka og presturinn blésu og hnoðuðu hann þangað til sjúkrafluttningarmennirnir komu. Hann komst til lífs sem betur fer og hann er orðinn stöðugur en hann man ekki neitt. />

 En hún amma var svo falleg og leit svo vel út að hún minnti mig á engil og það er hún nú orðin.....Engill.  Guð hvað ég sakna hennar. />

Ég sakna líka þess að búa á Ísafirði því öll mín fjölskylda er þar. />

En ég hef bestu fjölskylduna mína hjá mér börnin mín og kærasta minn já hann er kærasti minn því við erum ekki gift svo þannig er það />

En núna er mér farið að hlakka til sumarsins fara í ferðalag og fara vestur og slappa af og sofa út og borða og sóla sig og sóla sig meira og slappa meira af og bara njóta lífsins. />

Ljóð />

Amma mín />

Elsku besta amma,
nú hvílir þú,
að sjá þig fella úr landi,
er nú rosa sárt.

ég sit og hugsa,
hve margt við gerðum saman,
hugur minn stöðvar aldrei,
það hefði verið svo gaman.

Kannski er gott að þú fórst,
ég veit að guð er góður,
þú varst orðin veik,
ég er samt alveg óður.

Ég græt og læt,
fella niður tár,
ég er voða sár,
Mér langar til þín,

Þegar ég er orðin gamall,
og hverf útúr heimi,
kannski sé ég þig,
ef þú verðir ekki komin aftur,
í heiminn.

Það er ekki hægt að eiga góða ömmu,
góða ömmu eins og þú,
margar ömmur veit ég elskaði þær,
af öllum reit míns hjarta,
"Og þú ert ein af þeim" />

Þangað til næst Kveðja Sirrý />


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.04.2008 20:08:43 / sirrye

Amma Mín

                                
                    Í minningu Ömmu minnar:cry:

                                            

Amma mín hún Helga María  er dáinn. Hún lést  á fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði:cry: />

Hún fæddist 6 september 1939 Hún lést 23 apríl 2008:cry: />

Ég sakna þín amma mín og ég elska þig. Ég veit að þú ert komin á betri stað núna guð geymi þig:cry: />

Þín Sirrý:cry:

Ég biðst innilegar afsökunar á brosköllunum inn í færslunni þeir koma sjálfkrafa inn og ég fynn enga leið að ná þeim út því þeir eiga engan vegin við hér


/>





» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Heimsóknir
Í dag:  0  Alls: 14308
Klukkan
Dagsetning
21. mars 2010